

Kafli 1 • Talnareikningur
37
1.181
Notaðu staðalform og skráðu stærð smádýranna hér á eftir í metrum.
a
krabbadýr, 4 mm
b
nit lúsar, 0,8 mm
c
laxalús, 1,2 mm
d
lirfa laxalúsar, 0,7 mm
e
einfrumungur, 15 μm
f
amaba, 0,5 mm
1.182
Finndu tíu ferningstölur og tíu teningstölur.
1.183
Reiknaðu með slumpreikningi í huganum. Finndu töluna eða prósentin.
a
50% af 754
b
20% af 444
c
75% af 605
d
25% af 960
e
50 af 153
f
15 af 76
g
258 af 862
h
512 af 574
1.184
Til að rósir og önnur afskorin blóm haldist lengur fær maður oft afhenta
fljótandi næringu í litlum poka. Slíkur poki inniheldur 1,5 ml af plöntu-
næringu og á að blanda í 0,5
l
af vatni.
Hve mörg prómill af næringu eru þá í vatnsblöndunni?
1.185
Um hve mörg prósent hefur verðið hækkað?
a
Skíði voru seld á útsölu fyrir 19 980 kr. Nokkrum mánuðum síðar
var verðið komið upp í 28 900.
b
Snjóbretti var selt á útsölu fyrir 3990 kr. Nokkrum mánuðum síðar
var verðið komið upp í 5490 kr.
1.186
Júlía tekur bankalán að upphæð 400 000 kr. Hún á að borga 40 000 kr.
í afborganir á mánuði í tíu mánuði. Hún þarf einnig að borga 7,6% vexti
af eftirstöðvunum hverju sinni.
a
Notaðu töflureikni til að sýna hve mikið Júlía þarf að borga samtals
í hverjum mánuði.
b
Hve mikið hefur Júlía borgað í vexti þegar hún hefur greitt lánið að fullu?
c
Hve mörg prósent hefur Júlía borgað alls í vexti?