

Skali 2A
38
1.187
Hvernig geturðu stytt brotið
2
____
2
?
1.188
Í Barðaskóla á að velja formann
nemendaráðs. Kannað var tvisvar með viku
millibili hve marga stuðningsmenn hver
frambjóðandi hafði. Taflan sýnir fjölda
stuðningsmannanna í þessi tvö skipti.
a
Notaðu töflureikni til að finna hve margra prósenta stuðning hver
frambjóðandi fékk í hvorri könnun. Gefðu prósentutöluna upp með
einum aukastaf.
b
Settu niðurstöður kannananna fram í súluriti.
c
Stuðningur við hvaða frambjóðanda breyttist mest milli þessara
skoðanakannana?
d
Um hve mörg prósentustig breyttist stuðningur við frambjóðandann í c-lið?
e
Um hve mörg prósent breyttist stuðningur við frambjóðandann í c-lið?
1.189
Röð með teningum er búin til úr sentikubbum og stækkar um einn á hverja hlið
með hverjum nýjum teningi. Teningarnir eru málaðir að utanverðu. Þess vegna
munu þrjár hliðar einhverra sentikubbanna verða málaðar, tvær hliðar sumra
kubbanna, ein hlið á nokkrum þeirra og engin hlið á öðrum.
a
Skrifaðu töfluna hér á eftir upp. Finndu fjölda kubba í hverjum teningi og
einnig hve margir kubbar eru málaðir og á hve mörgum hliðum.
b
Kallaðu hliðarbrún teningsins n og finndu stæðu sem táknar fjölda
sentikubba þar sem málaðar hafa verið
•
3 hliðar
•
2 hliðar
•
1 hlið
•
engin hlið
c
Reiknaðu út summu teninganna þar sem málaðar hafa verið 3, 2, 1 og 0
hliðar og gakktu úr skugga um að summan samsvari fjölda sentikubba í
hverjum teningi. Athugaðu einnig hvort summan er rétt í teningi með
hliðarlengdina n.
Fjöldi sentikubba
á hverri hlið
teningsins
Fjöldi sentikubba í teningnum
Fjöldi málaðra sentikubba
3 hliðar
2 hliðar
1 hlið 0 hliðar
2
3
Fyrri
könnunin
Síðari
könnunin
Marta
74
93
Georg
122
115
Nóra
59
65
Veit ekki
32
14