

Kafli 1 • Talnareikningur
13
1.38
Leikskólinn Sólbakki undirbýr að smíða nýjan sandkassa sem á að verða
ferningslaga. Ákveðið er að lengja allar hliðar um 20% miðað við
upprunalegu vinnuteikninguna.
Um hve mörg prósent stækkar flatarmál sandkassans?
1.39
Notaðu töflureikni. Þú átt að kaupa fjögur raftæki. Þú athugar verðið á
sömu vörum í þremur verslunum. Hvar borgar sig að kaupa vörurnar?
Ódýra rafbúðin
Allar vörur −5%
Rafmagnstækin þín
Allar vörur −10%
Tækjasjoppan
Allar vörur −1000 kr.
Tölva
49 800 kr.
51 000 kr.
49 800 kr.
Myndavél
15 980 kr.
21 980 kr.
19 980 kr.
Útvarp
9980 kr.
11 980 kr.
8980 kr.
Spjaldtölva
33 879 kr.
31 800 kr.
29 980 kr.
1.40
Þú ætlar að kaupa skíðaútbúnað. Í búðinni biður þú um að fá gott
tilboð miðað við að þú kaupir skíði, bindingar, skíðastafi, skíðaskó,
skíðajakka og skíðabuxur. Afgreiðslukonan segist geta gefið þér
15% afslátt ef þú kaupir heilan skíðapakka (skíði, bindingar, skó
og stafi) en ef þú kaupir til viðbótar skíðajakka og skíðabuxur getir
þú fengið 20% afslátt af öllum vörunum.
Notaðu verðlistann til hægri og reiknaðu út verðið miðað við
tilboðin tvö.
1.41
Í skoðanakönnun jókst fylgi flokks um 3 prósentustig.
Það þýddi að fylgjendum flokksins fjölgaði um 12,5%.
Hve mörg prósentustig var fylgi flokksins áður?
1.42
Eina vikuna selur veitingastaður nokkur 358 pitsur af 448 sem
pantaðar höfðu verið. Viku seinna seldi veitingastaðurinn 323 pitsur
af 442 pöntuðum.
Hve mikil breyting var á sölu á pitsum síðari vikuna miðað við þá fyrri?
Gefðu svarið upp í prósentum og prósentustigum.
1.43
Stjórn fyrirtækis ákveður að 3‰ af árlegum hagnaði skuli nota til að
styrkja menningarstarfsemi bæjarins. Eitt árið voru 775 800 kr. notaðar
í slíka styrki.
Hver var hagnaður þessa árs?
Verslun
Vara
VERÐLISTI
Skíði
47 980 kr.
Bindingar
9180 kr.
Skíðaskór
25 800 kr.
Skíðastafir
9000 kr.
Skíðajakki
33 980 kr.
Skíðabuxur
17 980 kr.