Previous Page  13 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 13 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 1 • Talnareikningur

11

1.27

Notaðu töflureikni og formúlur með tilvísunum í hólf.

a

Ottó, Pétur og Ída vinna sér inn 16 700 kr. með því að taka til í garði

nágrannans. Ottó á að fá 42%, Pétur á að fá 27% og Ída afganginn.

Hve mikið fær hvert þeirra í sinn hlut?

b

Eitt sumarið rigndi í 52 af 90 dögum.

Hvað voru rigningardagarnir mörg prósent daganna?

1.28

Barði fær sumarvinnu á bensínstöð. Hann fær það verkefni að

lækka verð á öllum sumarvörunum (merktar með S) um 70%.

Hinar vörurnar á listanum hér til hliðar á að hækka um 10%.

Barði á að námunda verðið að næsta tíkalli.

a

Notaðu töflureikni til að finna nýja verðið.

b

Eftir að verðinu hefur verið breytt kaupir einn viðskiptavinur

tíu poka af eldiviði, fjóra brúsa af rúðuvökva, eina kælitösku

og tvo garðstóla. Græðir hann eða tapar á kaupunum miðað

við að hann hefði keypt vörurnar áður en verðinu var breytt?

1.29

Í bekkjardeild með 28 nemendum fengu sex nemendur einkunnina 9

á stærðfræðiprófi. Seinna var haldið annað próf og þá fengu átta

nemendur einkunnina 9.

a

Hve mörgum prósentum fleiri nemendur fengu einkunnina 9 á seinna

prófinu en á því fyrra?

b

Um hve mörg prósentustig jókst sá hluti nemenda sem fékk

einkunnina 9 frá fyrra prófinu til þess síðara?

1.30

Fyrirtæki nokkurt hagnast einn mánuðinn um 23 650 000 kr.

Stjórn fyrirtækisins ákveður að nota 8‰ af hagnaðinum til að

styrkja tónlistarskóla bæjarins.

Hvað fékk tónlistarskólinn háa fjárhæð í styrk?

1.31

Það eru 12 dl af vökva í könnu. Af þeim eru 0,036 dl edik en

afgangurinn er vatn.

Hve mörg prómill er edik af blöndunni?

1.32

Hugsaðu þér tvær saltlausnir. Lausn A inniheldur 2‰ salt en lausn B 5‰.

Þú blandar 5 dl af lausn A í 7 dl af lausn B.

Hve mörg prómill salt eru í blöndunni?

VERÐLISTI

Sundbolti

(S) 1184 kr.

Baðhandklæði

(S) 2586 kr.

Bílabón

4781 kr.

Eldiviður, 20

l

poki

1580 kr.

Garðstóll

(S) 2979 kr.

Kælitaska

(S) 4993 kr.

Sólgleraugu

(S) 5955 kr.

Sólkrem

(S) 1788 kr.

Rúðuvökvi

1194 kr.

Strandleikföng

(S) 1399 kr.