

Skali 2A
8
1.13
Óli vó 3,8 kg þegar hann fæddist. Nú vegur hann 63 kg.
Um hve mörg prósent hefur hann þyngst?
1.14
Eru fullyrðingarnar sannar eða ósannar?
a
Verð vöru getur lækkað um meira en 100%.
b
Verð vöru getur hækkað um meira en 200%.
c
Þegar verð vöru tvöfaldast hefur verðið hækkað um 200%.
d
Þegar verð vöru hækkar um 100% hefur verðið tvöfaldast.
e
Þegar verð vöru er 300% af verði annarrar vöru er verð fyrrnefndu
vörunnar þrefalt verð síðarnefndu vörunnar.
f
Þegar verð vöru hefur hækkað um 100% kostar varan 200%
af upprunalega verðinu.
1.15
Notaðu töflureikni. Finndu:
a
Hve mörg prósent nemenda í bekkjardeild þinni eru stelpur?
b
Hvað eru 42% af aldri þínum margar vikur?
c
Hve mörg prósent af árinu ert þú í skólanum, skráð í klukkustundum?
d
Hve mörg prósent af vikunni notar þú utan skólatíma til að stunda
eftirlætis tómstundaiðju þína?
1.16
Notaðu verðlistann hér til hliðar og töflureikni.
a
Vörurnar á að selja með 30% afslætti.
Finndu nýja verðið.
Námundaðu verðið að næstu heilu krónu.
b
Sindri fer á útsölu og kaupir þrjár skyrtur,
tvær hettupeysur, buxur og fimm sokkapör.
Hvað þarf Sindri að borga?
c
Jóhannes ætlar að kaupa sér föt á útsölunni
fyrir 80 000 kr. Gerðu tvær tillögur um hvað
hann getur keypt fyrir peningana.
d
Hve mikla peninga sparar Jóhannes á því að
kaupa fötin á útsölu miðað við að kaupa þau
á fullu verði?
Reiknaðu með
að í skólaárinu
séu 178 dagar.
VERÐLISTI
Peysa
5960 kr.
Buxur
10 980 kr.
Bolur
3380 kr.
Hettupeysa
6980 kr.
Skyrta
6580 kr.
Jakkaföt
79 960 kr.
Bindi
5140 kr.
Sokkar
980 kr.