Previous Page  12 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 12 / 124 Next Page
Page Background

Skali 2A

10

Fyrr:

240 000 kr.

Núna: 182 000 kr.

76 kr.

1.23

Reiknaðu í huganum með slumpreikningi. Útskýrðu skriflega hvernig þú

hugsar.

a

Hvolpur kostar 240 000 kr. Vegna þess að skottið á hvolpinum hafði

brotnað er hann seldur á 182 000 kr. Um það bil hve mörg prósent er

afslátturinn?

b

María kaupir Kjarvalsmálverk fyrir 2 480 000 kr. Tveimur árum síðar selur

hún málverkið fyrir 2 960 000 kr.

Um það bil hvað hækkaði málverkið um mörg prósent í verði?

1.24

Reiknaðu í huganum með slumpreikningi. Útskýrðu skriflega hvernig

þú hugsar.

a

Birna fær útborgaðar 265 600 kr. á mánuði. Af þeim fara um það bil

25% í matvörur. Um það bil hve margar krónur fara til að greiða fyrir

matvörurnar?

b

Um það bil 70% af mannslíkamanum er vatn. Atli vegur 62 kg.

Um það bil hve mikið vatn er í líkama hans?

1.25

Taflan sýnir verð nokkurra vörutegunda árið 2000 og árið 2013.

Vörutegund

Verð 2000 Verð 2013

1 kg súpukjöt (lamba)

531

841

1

l

mjólk

76

129

1 kg kaffi

779

1918

1 kg smjör

403

699

1

l

bensín

98

246

Heimild: Hagstofa Íslands

a

Um hve mörg prósent hefur verð hverrar vörutegundar hækkað?

b

Árið 2000 voru regluleg mánaðarlaun verkafólks kr. 127 000 að

meðaltali. Árið 2013 voru þau kr. 311 000. Um hve mörg prósent

hækkuðu launin milli áranna 2000 og 2013?

c

Berðu saman svörin í a-lið og b-lið og leggðu mat á hvort matarverð hefur

hækkað eða lækkað miðað við laun verkamannsins. Rökstyddu svarið.

1.26

Nágrannarnir Ólafur og Pétur eiga hvor sína lóð. Lóð Ólafs er 780 m

2

og lóð Péturs er 1130 m

2

. Dag nokkurn kaupir Ólafur 210 m

2

af Pétri.

a

Um hve mörg prósent stækkaði lóð Ólafs við kaupin?

b

Um hve mörg prósent minnkaði lóð Péturs við söluna?

c

Hvað er nýja lóðin hans Ólafs mörg prósent af upprunalegu lóðinni?

Mjólk

129 kr.