

Lestrarráð!
Kæri nemandi,
Allir námsmenn þurfa að temja sér góðar námsvenjur.
Hér eru góð ráð sem gætu hjálpað þér við lestur.
Áður en þú byrjar lesturinn
•
Skoðaðu bókina vel, myndir, kort og gröf.
•
Lestu efnisyfirlit og kaflaheiti.
•
Um hvað fjallar bókin?
•
Hvað veist þú um efnið?
Á meðan þú lest
•
Finndu aðalatriðin.
•
Skrifaðu hjá þér minnispunkta.
•
Gott er að gera skýringarmyndir eða hugarkort.
•
Spyrðu um það sem þú skilur ekki, t.d. orð og orðasambönd.
Eftir lesturinn
•
Rifjaðu upp það sem þú last.
•
Veltu fyrir þér hvað eru aðalatriði og hvaða atriði
skipta minna máli.
•
Hugsaðu um það sem þú hefur lært og tengdu við það
sem þú vissir áður.
•
Reyndu að endursegja textann með eigin orðum.