80
81
Námsgagnastofnum 2015
–
07011
EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI
Hlutir sogast út um bílglugga
Lögmál Bernoullis er einnig að verki þegar hlutir sogast út um
bílglugga á mikilli ferð. Þegar bíllinn ekur hratt þá streymir loftið hratt
meðfram bílglugganum óháð því hvort það er vindur úti eða ekki.
Lögmál Bernoullis segir að þrýstingurinn minnki í lofti og vökva sem
er á mikilli hreyfingu. Þrýstingur er því minni við opinn bílgluggann
þar sem loftið streymir hratt en inni í bílnum þar sem loftið er miklu
kyrrara. Þegar við sleppum hlut nálægt glugganum færist hann átt að
minni þrýstingi við gluggann og þeytist út um hann.
verkefni/UMRÆÐUR
1.
Hefur þú fundið hvernig loftið
streymir framhjá bílglugga þegar
bíllin er á ferð? Hefur þú lent í því að
missa hlut út um bílglugga?
2.
Blað sogast út um glugga skólastofu
þegar vindurinn úti er mjög hvass.
Hvernig er hægt að útskýra það með
lögmáli Bernoullis?
Þrýstingur
segir okkur hve mikill kraftur verkar
á tiltekið flatarmál.
Eðlismassi
segir til um hve mikill massi er í
tilteknu rúmmáli.
Vökvaknúnar vélar
færa kraft á milli staða í
vökva. Þær nýta sér þá staðreynd að þrýstingurinn
frá vökvanum er alls staðar sá sami.
Flotkraftur
er krafturinn sem verkar upp á við á
hluti í lofti eða vökva.
Lögmál Arkímedesar
segir að hlutir léttist um
þyngd þess vökva sem þeir ryðja frá sér.
Lögmál Bernoullis
segir að þrýstingur minnki
þegar vökvi eða loft streyma hraðar.
Samantekt úr kafla 4
Stærðfræðileg nálgun í lok 4. kafla
Kassi sem vegur 100 kg ýtir með þyngdarkraftinum 980 N á gólfið undir kassanum. Flatarmálið á
botni kassans er 0,5 m
2
. Hver er þrýstingurinn undir kassanum?
Ferningslaga málmlóð er 5 cm á kant og vegur 985 grömm. Hver er eðlismassi þess? Úr hvaða
efni er lóðið líklega miðað við töflu yfir eðlismassa efna í kaflanum?
Sama málmlóð er sett út í vatn. Lóðið léttist um þyngd vatnsins sem það ýtir frá sér. Hvað verður
lóðið þungt í vatninu?
Flatarmálið undir grískri súlu sem vegur 20 tonn er 1 m
2
. Hvað verkar mikill þyngdarkraftur frá
súlunni á undirlagið? Hver er þrýstingurinn undir súlunni?




