66
67
Námsgagnastofnum 2015
–
07011
EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI
Við fáum hellu fyrir eyrun
vegna þrýstingsbreytinga
Flestir hafa fengið hellu fyrir eyrun
við það að fara á loft í flugvél eða
aka upp langa brekku. Við þessar
aðstæður lækkar loftþrýstingurinn
utan við hljóðhimnuna hraðar en
þrýstingurinn innan við hana. Þá
þenst hljóðhimnan út og við fáum
hellu. Með því að tyggja eitthvað
þá opnum við leið fyrir loft eftir
kokhlustinni frá hálsinum upp í
eyrað innan við hljóðhimnuna.
Þrýstingurinn jafnast út og verður
sá sami inni í eyranu og utan þess
og hljóðhimnan fer í eðlilega stöðu.
Hvers vegna er gott að
staðsetja hitaveitu- og
vatnstanka uppi á hæð?
umræðuefni
Flatarmálið undir skíðunum er margfalt meira en
undir skónum. Þrýstingurinn verður því miklu minni
undir skíðunum og þess vegna sekkur skíðafólk ekki
á kaf í snjóinn.
JAFNA FYRIR ÞRÝSTING
Jafna fyrir þrýsting segir okkur hve
mikill kraftur verkar á tiltekið flatarmál:
þrýstingur =
p =
p er táknið fyrir þrýsting, F fyrir vinnu
og A fyrir flatarmál.
SI mælieiningin fyrir þrýsting er Pascal
sem er táknað með Pa.
Bókstafurinn F táknar kraft og er í
einingunni njúton (N). Bókstafurinn
A táknar flatarmál og er í einingunni
fermetrar (m
2
).
F
A
kraftur
flatarmál
verkLEG ATHUGUN
Kraftur og flatarmál hafa áhrif á þrýsting
Þrýstingur eykst eftir því sem krafturinn verður meiri. Þetta má sjá
þegar við notum hamar til þess að reka nagla í vegg. Krafturinn frá
högginu eykur þrýstinginn við odd naglans sem stingst inn í vegginn.
Flatarmál svæðisins þar sem krafturinn verkar skiptir einnig máli. Af
hverju getur skíðagöngumaður rennt sér ofan á snjónum á meðan fólk
í gönguskóm sekkur upp að hnjám? Flatarmálið undir skíðunum er
margfalt meira en flatarmálið undir gönguskóm. Þyngdarkrafturinn
frá skíðagöngumanninum dreifist yfir stórt svæði og þrýstingurinn
verður það lítill að hann getur flotið á skíðunum efst í snjónum.
Hægt er að skoða áhrif á þrýsting þegar annað hvort krafti eða flatarmáli er breytt. Hægt er að breyta krafti en hafa
flatarmálið sem hann verkar á óbreytt til dæmis með því stafla hlutum ofan á annan hlut. Dæmi um það hvernig
er hægt að breyta flatarmáli, en hafa sama kraft áfram, er að leggja bók fyrst flata og svo með kjölinn niður. Ef farið
er að öllu með gát geta nemendur prófað áhrif þessara breytinga á þrýstingnum með því að hafa höndina undir
hlutunum.




