Previous Page  68-69 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 68-69 / 83 Next Page
Page Background

68

69

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

Þrýstingurinn vex eftir því sem farið er niður

á meira dýpi í hafinu. Vatnssúlan er hærri og

þyngri fyrir ofan kafbátinn og þess vegna

verður hann fyrir meiri þrýstingi en kafarinn.

Hvers vegna er neðri gosbunan lengri en sú efri?

Til þess að sjúga upp vökva þá

minnkum við þrýstinginn í munninum.

Andrúmsloftið ýtir þá á meiri krafti á

vökvann en loftið inni í munninum og

vökvinn ýtist upp í munninn.

Hamarshöllin í Hveragerði er loftborið hús. Þrýstingurinn innandyra er örlítið hærri

en loftþrýstingurinn fyrir utan. Þetta skapar þrýsting út á við sem nægir til þess að

halda húsinu uppi svo það falli ekki saman. Íþróttahús af þessu tagi er mun ódýrara í

byggingu en hefðbundið íþróttahús.

verkLEG ATHUGUN

Hefur þú athugað hvað gerist þegar þú sýgur upp drykk í gegnumsogrör?

Ef þú ert ekki með sogrör við höndina getur þú samt hreyft munninn

eins og þú sért að sjúga upp drykk. Hvaða áhrif hefur soghreyfingin á

kinnarnar? Breytir það einhverju ef drykkurinn er seigur og þykkur (til

dæmis safi úr ávaxtapressu eða þykkur mjólkurhristingur)?

Að sjúga upp vökva

Í hafinu eykst þrýstingurinn eftir því sem neðar dregur. Þegar farið er

niður á við er sífellt meira vatn fyrir ofan sem verkar með þyngdarkrafti

niður á við. Á 10 metra dýpi í vatni er tvöfalt meiri þrýstingur en við

yfirborðið. Þegar við sjúgum vökva í gegnum rör látum við kjálkann

síga þannig að það verður meira pláss í munninum. Munnurinn er

lokaður og því minnkar þrýstingurinn þegar sama magn af lofti dreifist

um stærra rými. Þegar þrýstingurinn er orðinn minni í munninum

en loftþrýstingurinn í andrúmsloftinu í kringum okkur þá ýtir

andrúmsloftið fyrir utan vökvanum upp í gegnum rörið.Við notum því

engan sérstakan kraft þegar við sjúgum upp vökva, loftþrýstingurinn

sér um að færa vökvann frá meiri þrýstingi í andrúmsloftinu upp í

munninn þar sem þrýstingurinn er minni! Hins vegar þurfum við að

nota vöðvana í kringum munninn til þess að minnka þrýstinginn.

Ryksuga byggir á sama lögmáli og að sjúga upp drykk með sogröri.

Í ryksugunni er vifta sem snýst og dælir lofti út úr henni. Við það

verður þrýstingurinn inni í ryksugunni minni en í andrúmsloftinu í

kring. Andrúmsloftið streymir frá meiri þrýstingi utan ryksugunnar í

átt að minni þrýstingi inni í ryksugunni. Í leiðinni ýtir andrúmsloftið

ryki og óhreinindum inn í ryksuguna.

verkefni/UMRÆÐUR

1.

Hvernig breytist þrýstingur með hæð eftir því sem við förum ofar í

andrúmsloftinu? En með dýpi ef við köfum niður á við í vatni eða sjó?

2.

Hvers vegna hleypir fólk á jeppum oft lofti úr dekkjunum þegar það ekur

ofan á snjó á veturna eða uppi á jökli? Hvernig breytist útlit dekkjanna?