Previous Page  64-65 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 64-65 / 83 Next Page
Page Background

65

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

w

4

Hvernig getur

brúin þolað

þyngd heillar

farþegaþotu?

Efni kaflans

4.1

Þrýstingur í vökvum og lofti.

4.2

Vökvaknúnar vélar.

4.3

Flotkraftur og lögmál Arkimedesar.

4.4

Lögmál Bernoullis.

Kraftar í vökvum og lofti

Markmið

Nemandi á að

… geta tengt hugtakið þrýsting við fyrirbæri í

daglegu lífi

… átta sig á hvernig þrýstingur breytist með hæð

… skilja verkun krafta í vökvaknúnum tækjum

… kynnast hugtökunum flotkraftur, eðlismassi og

lögmáli Arkimedesar

… átta sig á tengslum hraða og þrýstings í lögmáli

Bernoullis

Þrýstingur í vökvum og lofti

Þrýstingur er hugtak sem kemur oft við sögu í daglegu lífi. Til dæmis er

mikilvægt að hafa réttan þrýsting á lofti í bíldekkjum til þess að lágmarka

orkueyðslu og auðvelda akstur. Þegar það er of lint í dekkjunum þá eyðir

bíllinn meira eldsneyti. Annað dæmi um þrýsting er loftþrýstingur í

andrúmsloftinu. Þar sem farþegaþotur fljúga í um það bil 10 km hæð er

loftþrýstingurinn minni heldur en við yfirborð jarðar.

4.1

Þegar farþegaþota er á jörðu niðri er meira af lofti fyrir ofan hana en þegar hún er á flugi í 10 kílómetra hæð. Þyngdin á loftinu veldur

því að þrýstingurinn er meiri við yfirborð jarðar.