Previous Page  78-79 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 78-79 / 83 Next Page
Page Background

78

79

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

Lögmál Bernoullis

Lögmál Bernoullis fjallar um samband þrýstings og straumhraða

í lofti eða vökva. Samkvæmt lögmálinu þá minnkar þrýstingur í

vökva eða lofti þegar efnið er á hreyfingu. Ef hraðinn vex þá minnkar

þrýstingurinn enn frekar.

Lögmál Bernoullis skýrir meðal annars af hverju hlutir geta sogast

út um opinn bílglugga á ferð. Lögmálið svarar því einnig af hverju

gúmmíöndin í baðkerinu leitar undir bununa þar sem er minni

þrýstingur og af hverju regnhlífar nýtast ekki vel á Íslandi! Þegar

vindurinn blæs yfir regnhlífina þá myndast kraftur sem ýtir henni upp

á við.

Það var svissneski eðlis- og stærðfræðingurinn Daniel Bernoulli

sem fyrstur lýsti lögmálinu eftir að hafa fylgst með flæði vatns í pípu

sem mjókkaði. Hann áttaði sig á því að til þess að sama magn af vatni

gæti flætt um báða hluta pípunnar þá þyrfti vatnið að flæða hraðar í

gegnum granna hlutann. Hann uppgötvaði einnig að þrýstingurinn er

minni í granna hlutanum þar sem vatnið flæðir hraðar.

Lögmál Bernoullis verkar þegar blásið yfir blað

Lögmál Bernoullis gildir bæði um flæði í vökva og lofti og hægt er að sjá

hvernig það virkar með því að gera einfalda tilraun.

Blásið yfir blað

Þegar þú blæst eftir blaðinu þá myndast þar stöðugur loftstraumur.

Þrýstingurinn minnkar fyrir ofan blaðið en er áfram sá sami á neðri hliðinni

og blaðið lyftist upp á við í þá átt þar sem þrýstingurinn er minni.

4.4

Vökvinn rennur hraðar um grennsta hluta rörsins. Vegna hraðans er þrýstingurinn

lægstur í granna hlutanum. Þrýstingurinn þar nær því ekki að ýta vatninu jafnhátt

upp og í breiðari hlutum rörsins þar sem þrýstingur vatnsins er hærri.

verkLEG ATHUGUN

Taktu A4 blað og færðu styttri hliðina varlega upp að neðri vör.

Þyngdarkrafturinn verkar á blaðið og þess vegna sígur það niður.

Þrýstingur frá andrúmsloftinu er sá sami á báðar hliðar blaðsins og

hann hefur ekki sjáanleg áhrif á það. Prófaðu að blása niður eftir efri

hlið blaðsins. Hvað gerist?