Previous Page  72-73 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 72-73 / 83 Next Page
Page Background

72

73

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

Bjarni finnur greinilega fyrir flotkrafti á meðan hann er ofan í vatninu

sem léttir undir með honum. Vinir hans nefna þrjú atriði sem gætu

haft áhrif á flotkraftinn. Hvað heldur þú að skipti mestu máli: loftið í

lungunum, kraftur frá vatninu upp á við eða hvort salti hafi verið bætt

út í vatnið?

Hvað hefur mest áhrif á það að hlutir fljóta?

Við skulum skoða nánar hugmyndirnar frá vinum Bjarna. Fyrst eru

það lungun sem rúma nokkra lítra af lofti. Þegar við fyllum þau af lofti

þá verður auðveldara fyrir okkur að fljóta í vatni. Lungun eru hins vegar

frekar lítil í samanburði við allan líkamann og því er loftið í lungunum

ekki aðalatriðið á bak við flotkraftinn sem virkar á líkama Bjarna.

Saltmagn er annað atriði sem getur haft áhrif á hvort hlutir fljóta. Ef

vatnið inniheldur mikið af salti eins og í Dauðahafinu, þarf fólk ekki

einu sinni vindsæng til þess að fljóta í vatninu. Saltið eykur eðlismassa

vatnsins svo mikið að mannslíkaminn verður eðlisléttari en vatnið.

Í hafinu umhverfis Ísland er tíu sinnum lægra hlutfall af salti en í

Dauðahafinu. Saltmagnið í sjónum hér við land hefur þess vegna lítil

áhrif á það hvort hlutir fljóta eða ekki.

Þriðja uppástungan er sú að flotkrafturinn komi frá vatninu og ýti

Bjarna upp á við. Þetta er alveg rétt og er helsta ástæða þess að við

léttumst við það að fara ofan í vatn.

Flotkraftur verkar af því að þrýstingur breytist

með hæð

Við höfum áður kynnst því hvernig þrýstingurinn vex eftir því sem

farið er neðar í hafinu eða lofthjúpnum. Ef við setjum hlut eins og

kassa ofan í vatn þá er meiri þrýstingur á neðri hluta kassans heldur

en efri hlutann.

Af hverju verð ég

svona léttur í vatninu?

Vatnið ýtir þér upp.

Loftið í lungunum

hjálpar þér að fljóta.

Getur verið að þú

hafir sett smávegis af

salti út í vatnið?

Saltmagnið í Dauðahafinu er svo mikið

að fólk getur flotið án þess að nota

vindsæng.