Previous Page  70-71 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 70-71 / 83 Next Page
Page Background

70

71

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

Vökvaknúnar vélar

Þrýstingur í lofti og vökva verkar í allar áttir. Það er hins vegar mjög

mismunandi hvernig gengur að þjappa efnum saman. Það er lengi

hægt að dæla meira lofti í bíldekk því loft þjappast ágætlega saman. En

hvernig gengur að þjappa saman vökva? Við skulum skoða það atriði

nánar.

Í athuguninni hér til hliðar sést að vatnið þjappast ekki saman

heldur verkar þrýstingur frá vatninu á móti hreyfingunni. Sami

þrýstingur verkar einnig á allar hliðar flöskunnar.

Þrýstingurinn dreifist jafnt um allar hliðar vökvans

Eiginleiki vökva að dreifa þrýstingi jafnt til allra hliða nýtist vel í

vökvahemlum í bílum, lyfturum og ýmsum öðrum vélum. Við ýtum

litlu stykki ofan í vökva. Vökvinn færist til og lyftir upp miklu stærra

stykki annars staðar með margfalt meiri krafti. Hér er lykilatriði að

vökvinn ýtir alls staðar með sama þrýstingi. Þrýstingur er kraftur á

flatarmál og þess vegna verkar margfalt meiri kraftur á stóran flöt en

lítinn flöt þegar þrýstingurinn er sá sami alls staðar í vökvanum.

Ef svæðið þar sem vökvinn ýtist upp er 100 sinnum stærra en svæðið

þar sem vökvinn ýtist niður þá verkar 100 sinnum meiri kraftur á

flötinn sem ýtist upp. Þetta er dæmi um það hvernig nota má einfalda

vél til að margfalda kraft.

Flotkraftur og lögmál Arkimedesar

Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér af hverju blaðra full af

eðlisléttu gasi eins og helíni svífur í andrúmsloftinu? Yfirleitt falla

hlutir beint til jarðar en á uppblásna helínblöðru virkar kraftur sem er

stærri en þyngdarkrafturinn og lyftir blöðrunni upp á við. Þessi kraftur

nefnist flotkraftur en hann verkar á hluti í vökva og lofti og stefnir

upp á við. Uppblásinn hringur flýtur í sundlaug því flotkrafturinn

á hann er stærri en þyngdarkrafturinn. Járnlóð sekkur hins vegar til

botns vegna þess að þyngdarkrafturinn á lóðið niður á við er stærri en

flotkrafturinn upp á við.

Flotkraftur hefur áhrif á alla hluti í vökva eða lofti

Flotkraftur hefur áhrif á alla hluti í vökva eða lofti, hvort sem þeir

eru léttir eða þungir. Við finnum áhrif frá þessum flotkrafti þegar við

höldum á annarri manneskju í sundi. Það er miklu auðveldara að halda

á henni ámeðan hún er ofan í vatninu en þegar hún er komin upp úr því.

En hvað hefur áhrif á flotkraftinn? Nokkrir vinir í sumarbústaðarferð

velta þessu atriði fyrir sér.

verkLEG ATHUGUN

Taktu tóma flösku og fylltu hana

af vatni upp í flöskustútinn.

Prófaðu síðan að ýta tappa eða

fingri ofan í stútinn á flöskunni

þannig að vatnið geti ekki runnið

framhjá. Hvað gerist?

Vatn og aðrir vökvar þjappast lítið sem

ekkert saman. Þess vegna er ekki hægt

að ýta tappanum ofan í vatnið því það

þrýstir með sama krafti á móti.

Í vökvalyftu er sami þrýstingur

alls staðar í vökvanum. Hún virkar

þannig að hægt er að ýta með litlum

krafti á lítinn flöt til þess að lyfta

þungum hlut á stærri fleti.

Í kaflanum er sagt frá

vökvahemlum og vökvalyftu

sem dæmi um vökvaknúnar

vélar. Dettur þér í hug einhver

önnur tæki eða vélar sem nota

vökva til þess að flytja kraft?

umræðuefni

4.2

4.3