1. Hvaða gagn er hægt að hafa af
góðum bekkjarfundum?
2. Hvernig á að leysa mál sem
helmingur bekkjarins greiðir atkvæði með en hinn
helmingurinn atkvæði á móti? Á kennarinn
að blanda sér í málið?
3. Skrifaðu lista yfir atriði sem þér
finnst mikilvægast að hafa áhrif á innan
bekkjarins og innan skólans. Ræddu listann í
bekknum.
4. Veljið út eitt af atriðunum
sem koma upp í umræðunni yfir mikilvæg mál.
Hvað getið þið gert til að hafa áhrif
á málið? Hvern eða hverja þurfið
þið að ræða við til að leysa málið?
Hvernig ætlið þið að bera ykkur að?
5. Búðu til lýsingu á
bekkjarráði og nemendaráði ásamt upplýsingum
um verksvið og hlutverk þeirra. Hafðu lýsingarnar
það einfaldar að nemandi í fyrsta bekk skilji
þær.
6. Hversu margir fulltrúar eru í
nemendaráði þíns skóla?
7. Hver er formaður nemendaráðsins?
8. Af hverju er mikilvægt að nemendaráðið
að bekkjarráðið séu vel skipulögð
og virk?
9. Hvernig á góður fundarstjóri
að vera?
10. Hvað er gott skólalýðræði
að þínu mati?
11. Taktu viðtal við foreldra þína
eða afa og ömmur og spurðu þau hvernig nemendalýðræðið
var á þeim tíma er þau voru í skóla.
|