Sjálfsmyndin Réttindi og skyldur Hverjir ráða? Samastaður ... Upplýsingasamfélagið
..Hverjir ráða?
  Verkefni 3
   

Verkefni:
Verkefni 1
Verkefni 2
Verkefni 3
Verkefni 4
Verkefni 5
Verkefni 6

Ítarefni:
Burma


Krækjur

 
 

1. Leitaðu upplýsinga um Sierra Leone og skrifaðu stutta grein um ástandið þar nú. Hefur eitthvað breyst til batnaðar?

2. Í hvaða kjördæmi átt þú heima? Hvað hefur kjördæmið marga þingmenn? Hvað heita þingmenn þíns kjördæmis og í hvaða flokki eru þeir? Á kjördæmið ráðherra - og ef svo er - hvað heitir hann? Þú getur fundið upplýsingar á heimasíðu Alþingis.

3. Ríkisvaldinu er þrískipt. Skrifaðu stutta lýsingu á hlutverkum Alþingis, ríkisstjórnar og dómsstólanna.

4. Útskýrðu hugtökin meirihlutastjórn, minnihlutastjórn og samsteypustjórn.

5. Hver eru mikilvægustu verkefni ríkisstjórnar?

6. Hvað eru ráðuneytin mörg? Lýstu verksviðum þeirra í stuttu máli .

7. Hvað er saksóknari?

8. Ræðið í bekknum: Gera heimsóknir forseta Íslands til útlanda eitthvert gagn?

9. Notaðu bókasafn eða Netið og leitaðu upplýsinga um valdsvið forseta í nokkrum löndum - t.d. Bandaríkjunum, Frakklandi, Finnlandi og víðar.

10. Hver eru helstu hlutverk Alþingis? Lýstu ferli lagasetningar. Skoðaðu ungmennavef Alþingis og segðu bekknum frá tveimur eða þremur lögum sem Alþingi hefur nýverið samþykkt.

11. Farðu inn á heimasíðu einhvers ráðuneytanna Búðu síðan til stutta lýsingu fyrir bekkinn um helstu verksvið ráðuneytisins.

12. Skoðaðu heimasíðu Alþingis. Hvaða stjórnmálaflokkur/flokkar mynda ríkisstjórn núna? Búðu til lista yfir ráðherra ríkisstjórnarinnar og segðu frá úr hvaða flokkum þeir koma, hvaða kjördæmi og hvaða ráðuneytum þeir stýra..

13. Leitaðu eftir efni í dagblöðum sem fjalla um ríkisstjórn og/eða Alþingi. Hengið blaðaúrklippurnar upp á veggspjöld. Hvaða málefni eru helst til umræðu þessa stundina á Alþingi eða í ríkisstjórn? Hvaða skoðun hefur þú á málefnunum? (notaðu dagblöð eða Netið við upplýsingasöfnunina).

14. Reyndu að nálgast Stjórnartíðindi eða Alþingistíðindi (t.d. á Neti). Skoðaðu blaðið og veldu eitthvað svið sem þú hefur áhuga á (t.d. menntun, íþróttir eða innflytjendur). Skrifaðu stutta ,,blaðagrein" um málefnið og fjallaðu um málið í bekknum.

15. Skoðaðu heimasíðu Ríkislögreglustjóra og skrifaðu niður hver séu helstu verksvið embættisins? Veldu þér síðan einn málaflokk og lýstu honum nánar fyrir bekknum.

16. Ræðið í bekknum: Er hægt að búa án lögreglu á Íslandi?

17. Fylgstu með fréttum úr dagblöðum og skoðaðu hversu margar fréttir eru um ríkissaksóknara. Hvers konar mál er verið að fjalla um?

.