1. Samfélagsgreinarnar hjálpa okkur
við að skoða samfélagið utanfrá. Reyndu
að setja á blað hvaða óformlegu viðmið
stýra aðstæðum í bekknum þínum
annars vegar og hins vegar í frítíma þínum.
Hvaða viðgjöldum er beitt ef einhver brýtur
viðmiðin?
2. Fáðu sex
aðila á mismunandi aldri og báðum kynjum til
að skilgreina hugtakið ást. Er mikill munur á
skilgreiningunum? Er einhver ein þeirra öðrum réttari?
3. Lýstu í
meginatriðum þeirri frummótun sem þú
hefur fengið. Berðu hana síðan saman við
frummótun bekkjarfélaga þinna. Er einhver munur
á hvað þið hafið lært?
4. Búðu til
lista yfir hvernig nemendur í bekknum eigi að umgangast
og koma fram við hverja aðra? Berðu listann síðan
saman við lista annarra í bekknum.
5. Félagsleg viðmið:
a) Skrifaðu niður að minnsta kosti þrjú
félagsleg viðmið sem gilda í vinahópnum
þínum til dæmis hvað varðar hegðun,
tónlistarsmekk, klæðnað eða málnotkun.
b) Stangast einhverra viðmiðanna í vinahópnum
á við viðmið foreldra þinna? Eru einhver
viðmiða vinahópsins þess eðlis að foreldrarnir
geti ekki sætt sig við þau? Nefndu dæmi.
.
|