

Skali 2A
34
1.168
Þyngd Önnu er 75% af þyngd Atla. Samtals vega þau 147 kg.
Hver er þyngd þeirra hvors um sig?
1.169
Taflan sýnir fjölda tonna sem losuð voru af koltvísýringi (CO
2
)
á íbúa í nokkrum löndum.
Land
Árið 2000 Árið 2010
Ísland
9,72
10,78
Noregur
8,64
11,71
Bandaríki N-Ameríku 20,23
17,5
Kína
2,68
6,18
Heimild:
www.globalis.noog Hagstofa Íslands
a
Lýstu í prósentum þróuninni sem varð á þessu tíu ára tímabili
í hverju landi.
b
Hvert þessara fjögurra landa heldur þú að hafi losað mest af
CO
2
á íbúa árið 2010? Rökstyddu svarið.
1.170
Íslenski tíukrónupeningurinn er 1,78 mm á þykkt og 27,5 mm í þvermál.
Hugsaðu þér að við stöflum tíköllunum í háa stafla og þeir séu þétt
hver upp við annan eins og sést á myndinni til vinstri.
Hvað er pláss fyrir um það bil marga tíkalla í kassa þar sem lengd allra
hliðanna er 1 m? Gefðu svarið upp á staðalformi.
1.171
Bíll er til sölu fyrir 4,3 milljónir króna. Til viðbótar söluverðinu
þarf kaupandi að borga kostnað sem nemur 2,5% af verðinu.
Hversu miklu lægri verður kostnaðurinn ef kaupandinn fær bílinn
með 8% afslætti?
Tíkallastaflarnir
séðir ofan frá.