

Skali 2A
32
1.156
Einn mánuðinn vann Óskar sér inn 150 000 kr. en faðir hans 560 000 kr.
Hvað fékk faðirinn mörgum prósentum meira en Óskar?
1.157
Soffía tryggir bílinn sinn fyrir 2 350 000 kr. Tryggingariðgjaldið nemur
2,5‰ af tryggingarupphæðinni.
Hve hátt er iðgjaldið?
1.158
Fjarlægðin frá sólu að miðju Vetrarbrautarinnar er 260 000 000 000 km.
Skrifaðu töluna á staðalformi.
1.159
Eitt árið mældist á stað nokkrum 114 mm úrkoma í júní. Meðalúrkoma
í júní á þessum stað er 46 mm.
Hve mörgum prósentum hærri en meðaltalið var úrkoman þennan
júlímánuð?
1.160
Í maí 2015 var atvinnuleysi 6,7% af vinnuaflinu á Íslandi.
Það samsvaraði 13 206 manns.
Hvað taldi þá vinnuaflið um það bil marga menn þennan mánuð?
1.161
Í janúar 2014 fór 72 201 farþegi um Keflavíkurflugvöll en í júlí
voru þeir 184 204. Hve mörgum prósentum fleiri farþegar fóru
um Keflavíkurflugvöll í júlí en janúar 2014?
1.162
Marta fékk 30% afslátt af peysu. Hún borgaði 2520 kr.
Hvað kostaði peysan án afsláttarins?
1.163
a
Hvað er 3% af 10
6
?
b
Hvað er 5‰ af 1,2 ∙ 10
7
?
30% afsláttur
Nýtt verð: 2520 kr.