Previous Page  117 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 117 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 3 • Mál og mælieiningar

115

3.170

Unglingahópur býr til snjókarl í stærðfræðitímanum. Unglingarnir

velta þremur snjóboltum og láta þá vera misstóra. Þeir eiga að reikna

út massa snjókarlsins. Rúmmál kúlu má reikna út með formúlunni

R

kúla

=

​ 

4

___ 

3

π

r

3

Eðlismasssi samþjappaðs snjós er um það bil 0,3 g/cm

3

.

Minnsti snjóboltinn hefur geislann 2 dm, sá í miðstærðinni hefur

geislann 3 dm og stærsti snjóboltinn hefur geislann 5 dm.

Finndu massa snjókarlsins.

3.171

Sundlaug skólans er tóm. Dýpt hennar er 1,5 m þar sem hún er

grynnst og 3,0 m þar sem hún er dýpst. Sundlaugin er 12,5 m á lengd

og 7 m á breidd.

a

Húsvörðurinn ætlar að fylla sundlaugina af vatni. Hann notar slöngu

sem dælir 200

l

á mínútu. Hve langan tíma tekur að fylla sundlaugina af

vatni þannig að yfirborð vatnsins verði 5 cm fyrir neðan brúnina?

b

Í annað skipti pantar húsvörðurinn bíl með vatnsgeymi sem flytur vatn í

sundlaugina. Vatnsgeymirinn rúmar 10,5 m

3

.

Hve margar ferðir þarf vatnsbíllinn að fara til að fylla sundlaugina jafn

mikið og í a-lið?

3.172

Notaðu hugkvæmni þína og finndu út hvaða mælitæki og hvaða mælingar-

aðferð henta best ef þú átt að mæla eins nákvæmlega og hægt er

a

sjávardýpt á fiskimiðum

b

hæð á háu tré

c

massa strætós

d

massa eins frímerkis

e

þykkt mannshárs

f

tímann sem það tekur að

segja „halló“

3.173

Jóhanna er á ferðalagi í Finnlandi. Hún tekur 450 evrur út úr hraðbanka

með kreditkorti og notar peningana til að kaupa myndavél og snjóbretti.

Hún sér að gengi evru er 147,44. Í hvert sinn sem peningar eru teknir út af

kreditkortinu er lagt á 2,75% kostnaður af hverri upphæð en

lágmarkskostnaður er 650 kr.

a

Hvaða upphæð var dregin af reikningi Jóhönnu vegna þessarar úttektar?

b

Í annað skipti tók Jóhanna út 130 evrur með kreditkortinu sínu.

Hvaða upphæð var dregin af reikningi Jóhönnu í þessu tilviki?

5

3

2

3 m

12,5 m

1,5 m