Previous Page  115 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 115 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 3 • Mál og mælieiningar

113

3.162

Áður fyrr voru notaðar nokkrar aðrar mælieiningar en þær sem nú tíðkast.

a

Ræðið saman um heiti mælieininganna í reitnum til vinstri og finndu

hvaða lengd í reitnum til hægri samsvarar hverri þessara mælieininga.

örskot

röst

faðmur

skref

188 cm

76,5 cm

1 míla

200

400 m

b

Notaðu gömlu mælieiningarnar þannig að þær lýsi

vegalengd sem er 12 km

vegalengd sem er 20 m

lengd skólastofunnar þinnar

lengd leiðar þinnar í skólann

3.163

Tveir vinir búa hvor til sína safablöndu. Annar býr til 1,4

l

af blöndu úr

hreinum safa og vatni í hlutfallinu 1 : 6. Hinn býr til 2,0

l

af blöndu í

hlutfallinu 1 : 4.

Hvert verður hlutfallið milli hreins safa og vatns ef vinirnir sameina

blöndurnar sínar?

3.164

Í könnu er 1

l

af blöndu úr hreinum safa og vatni í hlutfallinu 1 : 4.

Sævar síþyrsti drekkur 4 dl af blöndunni og fyllir síðan með vatni upp í 1

l

.

Hvert er þá hlutfallið milli hreins safa og vatns í nýju blöndunni?

3.165

Sumar mælingar krefjast þekkingar og hugkvæmni.

Finndu út hvaða mælitæki er best að nota og hvernig hentugast er að

framkvæma eftirfarandi mælingar til að þær verði sem nákvæmastar.

Finna skal

a

massa bíls

b

rúmmál stórs poka

c

tímann sem það tekur að smella með fingrunum

d

tímann sem það tekur að blikka augunum

e

massa A4-blaðs

f

rúmmál krónupenings