Previous Page  44-45 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 44-45 / 83 Next Page
Page Background

44

45

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

3

Efni kaflans

3.1

Hitastig.

3.2

Varmaorka.

3.3

Áhrif varmaorku á efni.

3.4

Flutningur varmaorku.

3.5

Eðlisvarmi – sum efni hitna meira

en önnur.

3.6

Hitastig er mælikvarði á hreyfingu

sameinda.

Hitastig og varmaorka

Markmið

Nemandi á að

… læra að nota hugtakið hitastig

… geta mælt hitastig með hitamæli

… þekkja muninn á hitastigi og varmaorku

… vita hvernig við íslendingar nýtum jarðvarma

… vita hvernig varmaorka flyst á milli staða

… kunna að nota hugtakið eðlisvarmi

… vita að hitastig er háð hreyfingu sameinda

Hitastig

Hitastig er hugtak sem lýsir því hversu heitur eða kaldur hlutur er.

Hitastig tengist þeirri orku sem býr í viðkomandi efni eða hlut.

Hvað er það fyrsta sem kemur í hugann þegar orðið hitastig er nefnt? Er

það kannski veðrið úti eða ef til vill heitt og kalt vatn? Oft er hitastigið

gefið upp í tölum, til dæmis að hitastigið úti sé 15 °C.Hvernig ætli sé best

að mæla hitastig vatns eða hitastigið úti? Getum við til dæmis ákvarðað

hitastig vatns með því að stinga fingri í það eða þurfum við nákvæmari

aðferðir? Á myndinni eru fjórir vinir að ræða um hita vatns og hvort

hægt sé að nota mannslíkamann til að meta hitastigið nákvæmlega.

3.1

Hvort er betra að setja

gosið út á pall þegar

það eru 5 °C útivið eða

í 5 °C heitan læk sem

rennur við bústaðinn?

Hvers vegna?

Kalt í veðri.

Ætli gott sé að mæla hita

og kulda vatns með

fingrunum?

Maður finnur að minnsta kosti muninn

á heitu og köldu vatni með þeim.

Ég held að

fingurnir séu

góður

hitamælir.

Notum

heldur

hitamæli,

þeir eru

nákvæmari.