Previous Page  38-39 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 38-39 / 83 Next Page
Page Background

38

39

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

heildarorkan. Ef athugunin með reglustikuna er skoðuð sést að það

er fingurinn sem framkvæmir vinnu á reglustikuna og sú vinna verður

að aukinni stöðuorku hjá strokleðrinu. Vélin breytir stærð eða stefnu

krafta en orkan helst sú sama. Athugunin sem við gerðum var dæmi

um eina tegund einfaldrar vélar sem nefnist vogarstöng en það sama

gildir um allar einfaldar vélar.

Mismunandi gerðir einfaldra véla

Þegar talað er um

einfaldar vélar

í eðlisfræði þá er ekki verið að tala

um þær mörgu flóknu vélar og vinnutæki sem til eru. Heldur eru

þetta tæki sem auðvelda okkur vinnu, tæki sem geta verið án allra

hreyfanlegra hluta, tæki sem einfaldlega geta breytt stærð eða stefnu

krafta. Ef við skoðum nánar þær einföldu vélar sem um ræðir, má

skipta þeim í sex flokka:

vogarstangir

,

trissur

,

hjól

og ása

,

skáfleti

,

fleyga

og

skrúfur

.

umræðuefni

Nefnið dæmi um einfaldar vélar sem þið þekkið.

Vogarstöng

er ein gerð einfaldrar vélar. Athugunin sem við gerðum

fyrr í kaflanum með reglustiku, blýanti og strokleðri er dæmi um

vogarstöng. Fleiri dæmi eru vegasölt, skóflur, kúbein og skæri.

Vogarstöng er stöng sem snýst um einhvern fastan tiltekinn punkt

sem kallast vogarás (V). Á myndinni sjást skæri sem eru fyrsta stigs

vogarstöng, hjólbörur sem eru annars stigs og veiðistöng sem er

þriðja stigs vogarstöng. Gerð vogarstangar einkennist af staðsetningu

vogarássins. Vogarstöng getur breytt stefnu og stærð krafts en ekki

aukið orkuna.

Trissa

er önnur gerð einfaldrar vélar. Trissa er hjól sem bandi, belti

eða keðju er brugðið um. Trissa getur eins og vogarstöngin breytt bæði

stefnu og stærð krafts. Ef við skoðum myndirnar má sjá að trissur

eru notaðar á margvíslegan hátt. Með því að nota trissu getum við

margfaldað þann kraft sem við beitum á vél. Það getur verið hjálplegt

að nota einfalda trissu vegna stefnubreytingar á kraftinum. Ef tvær

trissur eru settar saman er hægt að tvöfalda kraftinn sem við beitum

á vélina. Það er að segja við þurfum að draga bandið tvöfalt lengri

vegalengd en við gerðum með einfaldri trissu en fáum tvöfalt meiri

kraft. Orka vélarinnar breytist þó ekkert. Síðan er hægt að bæta við

trissum og auka þannig við kraftinn sem vélin skilar.

Krani og hlaupaköttur eru

dæmi um trissu.

Trissa breytir stefnu krafts,

trissa margfaldar kraft.