connect_klb_sea - page 18

C
O
N
N
E C
T
– Kennsluleiðbeiningar –
Námsgagnastofnun 2015 – 9069
18
Shoes in All Seasons
Bls. 16
Áherslur
Einfaldur texti unnin úr orðaforða bókarinnar en með viðbótar orðaforða til
að bæta enn frekar við. Nemendur lesa sjálfir ef þeir treysta sér til eða hlusta
á textann lesinn. Samlestur hópsins getur líka verið skemmtilegur og hjálpar
þeim sem eru enn óöruggir. Umræður í kjölfarið geta verið um fleiri tegundir
af skóm eða annan fatnað sem hægt væri að útbúa svipaðan texta um.
Hugmyndir
Ritun um fatnað
Nemendur nota Portfolio sheet til að búa til fleiri setningar eins og eru í heftinu. Þær geta verið um aðrar
tegundir af fatnaði, t.d. hatta. Verkefnið fer í safnmöppuna.
Vangaveltur um eigið nám
Í lokin er gott að fara yfir hvað nemendur hafa lært með því að fara í gegnum bókina. Fyrir utan orðaforða
er gott að benda nemendum á þjálfunina sem fólgin er í því að tala og hlusta á tungumálið. Mikilvægt er
að nemendur þjálfist í því að meta styrkleika sína og veikleika. Slíkt má gera með því að nota sjálfsmatið
sem fylgir kaflanum eða finna önnur slík form meðal annars í
Evrópsku tungumálamöppunni
. Með slíkri
vinnu þjálfast nemendur í því að skoða eigin getu og læra að setja sér markmið.
Námsmat
Það getur verið gott að skrá getu og framfarir nemenda til að hafa yfirsýn yfir nám þeirra. Til þess má nýta
blöðin Seasons vocabulary list og Matslisti á færniþáttum. Vocabulary list má nota til þess að kanna hvort
farið hafi verið yfir helsta orðaforða bókarinnar og til að rifja upp orðin með nemendum. Matslistann má
nýta til að kanna hvort farið hafi verið yfir grunnþætti tungumálsins. Hvort unnið hafi verið með ritun,
talað mál, lesskilning og hlustun. Hafi nemendur tileinkað sér orðaforðann nokkuð vel og kennari þjálfað
alla grunnþættina ætti efninu að hafa verið gerð góð skil.
Efni til útprentunar
Shoes in
All Seasons
Sandalsaregood to
wearwhen it ishot.
Sandalsarebest
in the summer.
Sneakersaregood to
wearwhenonawalk.
Sneakersarebest
in theautumn.
Rainbootsaregood
towear in the rain.
Rainbootsare
best in the spring.
Snowbootsaregood
towear in the snow.
Snowbootsare
best in thewinter.
16
1...,8,9,10,11,12,13,14,15,16,17 19
Powered by FlippingBook