

Skali 2A
52
Empírísk föll og
ólínuleg föll
2.35
Myndin sýnir þróun mannfjölda á jörðinni síðustu þúsund árin.
a
Lestu af grafinu hve mikið íbúafjöldinn á jörðinni hefur aukist frá
árinu 1000 til ársins 2000.
b
Hugsaðu þér að þú eigir að segja einhverjum sem sér ekki grafið
hvernig þróun mannfjöldans á jörðinni hefur verið síðustu þúsund árin.
Hvað myndir þú segja?
c
Um hve mörg prósent, um það bil, fjölgaði jarðarbúum frá árinu
1000 til ársins 1750?
d
Um hve mörg prósent, um það bil, fjölgaði jarðarbúum frá árinu 1750
til ársins 1900?
e
Um hve mörg prósent, um það bil, fjölgaði jarðarbúum milli áranna
1900 og 2000?
f
Ræddu við bekkjarfélaga þinn: Hvernig haldið þið að mannfjöldinn muni
breytast í framtíðinni? Búið til graf sem sýnir niðurstöður ykkar. Grafið á
að byrja árið 2015 og enda árið 2100.
2.36
Skráðu hitastigið, þar sem þú býrð, á sama tíma á hverjum degi í einn
mánuð. Skráðu niðurstöðurnar í töflu.
a
Sýndu niðurstöðurnar úr töflunni með grafi.
b
Lýstu grafinu í a-lið.
c
Er hægt að nota grafið og tölurnar til að segja eitthvað um hitastigið
í næsta mánuði? Hvers vegna? Hvers vegna ekki?
d
Ræddu við bekkjarfélaga þinn um hvernig nota má slíkar upplýsingar.
Kannið málið.
1,000
2,000
3,000
0
Íbúa öldi jarðar síðustu 1000 ár
Ártöl
Milljónir
4,000
5,000
6,000
7,000
1000
1100
1200
1300
1400
1500
1600
1700
1800
1900
2000