

Kafli 2 • Föll
57
2.44
Afskriftir af bílum eru mjög mismunandi eftir
tegundum og ekki til nein föst regla þar.
Hins vegar er oft talað um „þumalputtareglu“
í því samhengi sem hægt er að miða við.
Línuritið hér á eftir sýnir hvernig verðgildi
algengra bíla breytist eftir aldri þeirra. Verð
á nýjum bíl er sýnt efst á y-ásnum, 100%.
a
Hvenær fellur verðið á bíl mest?
b
Hversu miklu tapar maður ef
hann kaupir bíl fyrir 5 000 000 kr.
og selur hann eftir
i) tvö ár?
ii) fimm ár?
iii) tíu ár?
c
Margir halda því fram að það borgi sig að kaupa nýjan bíl annað hvert ár.
Hvernig heldur þú að þeir rökstyðji það?
d
Margir halda því fram að ef maður á tíu ára gamlan bíl borgi sig að
eiga hann þar til þarf að farga honum. Hvernig heldur þú að þeir
rökstyðji það?
2.45
Safnaðu upplýsingum með því að mæla hitastig í glasi með ísvatni (notaðu
snjó eða ísmola) sem stendur í kennarastofunni. Upplýsingarnar verða fall
af tímanum. Skráðu hitastigið fimmtu hverja mínútu.
a
Gerðu töflu með þessum empírísku gögnum sem þú safnaðir með
mælingum.
b
Merktu gögnin sem punkta í hnitakerfi og búðu til samhangandi graf
gegnum punktana. Grafið lýsir empírísku falli.
c
Segðu til um hvaða gildi hitinn í ísvatninu getur tekið. Rökstyddu hvers
vegna gildin hljóta að vera þessi.
5
15
25
0
A öll af verðgildi bíls eftir aldri
Aldur bíls í árum
Verðgildi bíls
Prósent af upphaflegu verði bíls
0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
35
10
20
30
40
45
50
55
60
65
70
75
80
85
90
95
100
100
85
77
69
62
56
50
45
41
37
33