Previous Page  53 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 53 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 2 • Föll

51

2.32

Atli safnar sér fyrir nýrri tölvu. Í hverri viku setur hann 1000 kr. í bauk.

a

Útskýrðu hvers vegna upphæðin í bauknum er í réttu hlutfalli við þann

fjölda vikna sem liðnar eru.

b

Hversu lengi þarf Atli að leggja þessa upphæð fyrir áður en hann getur

keypt tölvuna sem kostar 120 000?

c

Eftir eitt ár byrjar Atli að leggja fyrir 1700 kr. á viku.

Hve langur tími líður áður en hann á nóga peninga fyrir tölvunni?

d

Teiknaðu graf sem sýnir hve mikið Atli hefur lagt fyrir. Grafið á að vera

fall af fjölda vikna frá því hann byrjaði að safna fyrir tölvunni.

2.33

Írena selur jarðarber fyrir utan bensínstöð. Garðyrkjubóndinn borgar henni

8000 kr. á dag óháð því hve margar öskjur hún selur. Þar að auki fær hún

240 kr. fyrir hverja öskju sem hún selur.

Ólöf selur fyrir annan garðyrkjubónda. Hún fær 400 kr. fyrir öskjuna

en ekkert til viðbótar.

a

Eru laun Írenu og Ólafar í réttu hlutfalli við fjölda askja sem

þær selja? Útskýrðu svarið.

b

Búðu til fallstæðu fyrir laun Írenu,

Í

(x) og aðra fallstæðu fyrir laun

Ólafar,

Ó

(

x

), þar sem

x

táknar fjölda askja sem þær selja.

c

Teiknaðu gröfin

Í

og

Ó

í sama hnitakerfi. Gott er að nota rúmfræðiforrit.

d

Hve margar öskjur þurfa stelpurnar að selja á dag til að fá sömu laun?

e

Hve mikið þarf Ólöf að selja til að vinna sér inn meira en Írena?

2.34

Hvaða fullyrðingar eru sannar?

a

Fjarlægðir á korti eru í réttu hlutfalli við fjarlægðir í náttúrunni.

b

Hlaupahraði þinn er í réttu hlutfalli við vegalengdina sem þú hleypur.

c

Vöruverð er í réttu hlutfalli við fjölda vara sem keyptar eru.

d

Ummál hrings er í réttu hlutfalli við þvermál hans.