

20
Goðsagnir um heimilisofbeldi
Ekkert afsakar ofbeldi á heimili. Margar útskýringar eru notaðar og
yfirleitt í þeim tilgangi að verja þann sem beitir ofbeldinu. Afsakanirnar
hafa því miður oft tilætluð áhrif og eru gjarnan endurteknar svo oft að
þær verða að lífseigum goðsögnum en eru í raun
ranghugmyndir
. Margar
þeirra snúast um hina fullorðnu á heimilinu:
– Það hlýtur að vera eitthvað að henni, annars væri hann ekki svona
afbrýðisamur.
– Hann gerði þetta meðan hann var í áfengi og pillum.
– Hjónadeilur eru einkamál og friðhelgi heimilisins er bundin í stjórnar
skrá.
Fátíðara er að goðsagnir um heimilisofbeldi snúist um börn. Ef til vill
vegna þess að fólk heldur að þau verði þess ekki áskynja. Goðsagnir um
börn og heimilisofbeldi eru t.d.
– Börnin vita ekkert af þessu; þeim er yfirleitt haldið utan við þetta.
– Börn vilja ekki segja frá ofbeldinu.
– Börnin muna ekkert eftir þessu seinna og þá skaðar það ekki.
Ekkert af þessu stenst eins og nánar verður vikið að í handbókinni.
Erlendar rannsóknir til margra ára hafa sýnt að börn vita um heimilisof-
beldi og þau kvarta yfir því að þekking þeirra og reynsla sé sniðgengin.
Nöturleg dæmi eru um þetta í íslensku skólastarfi (Guðrún Kristinsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir og Ingibjörg
H. Harðardóttir, 2014a; Nanna Þóra
Andrésdóttir, 2014). Sjá ítarlega umfjöllun og frásagnir barna í bókinni
Ofbeldi á heimili. Með augum barna,
frá 2014.
Áhrif heimilisofbeldis á börn
3.2
Áhrif ofbeldis og vanrækslu á börn eru stundum mikil. Hér má nefna
viðvarandi ótta, ógnanir og lífshættu og er þá ekki upptalið (Hornor,
2005). Þó ber að athuga að sum börn virðast takast á við ýmsa þá erfið-
leika sem fylgja slíkri reynslu án þess skaðast til lengri tíma (Edleson,
1999). Reynsla barns af ofbeldi á heimili einskorðast ekki við athafnir
heldur nær hún til upplifana og óbeinna áhrifa sem koma til vegna of-
beldisins, svo sem þess að verða vitni að ofbeldi eða heyra það sem á
gengur (Holden, 2003; sjá nánar í Guðrún Kristinsdóttir, Margrét Ólafs-
dóttir og Ingibjörg H. Harðardóttir, 2014a). Upplifanir eru mismunandi
Áhrif heimilis
ofbeldis á börn
eru margslungin