Notaður forritið Spurnir til að búa til
spurningalistann fyrir eftirfarandi könnun og vinna úr
svörunum.
Verkefni og skyldur heima fyrir
Ég er í
___ bekk
Merktu kross í
viðeigandi reiti ég er strákur ( ) stelpa
( )
ég bý í þéttbýli
( ) dreifbýli ( )
ég bý með öðru foreldri ( ) báðum
foreldrum ( )
Merktu við ef þú gerir
eftirfarandi einu sinni í viku eða oftar
( ) tek til í herberginu mínu
( ) tek til í öðrum herbergjum en mínu
eigin
( ) þvæ þvott
( ) þvæ upp
( ) set leirtau í uppþvottavélina
( ) geng frá leirtaui úr uppþvottavélinni
( ) sæki systkini í leikskólann
( ) tek þátt í garðvinnu, sópa
stéttir eða moka snjó
( ) þvæ bílinn
( ) smyr nesti
( ) fer út með ruslið
( ) elda
( ) ryksuga
( ) versla í matinn
( ) ryksuga, skúra og þurrka af í stofu
og öðru sameiginlegu rými
Takk fyrir þátttökuna
|
Ef könnunin er bara lögð fyrir
í ykkar bekk getur verið skemmtilegt að gera samanburð
á svörunum út frá kyni. Ef könnunin
nær til fleiri bekkja innan skólans er gagnlegt að
skoða fyrir utan kyn, hvort mikill munur sé á
milli aldurshópa. Ef könnunin nær út fyrir
skólann, er áhugavert að skoða hvort búseta
skipti máli og hvort munur sé á nemendum sem
koma úr þéttbýli annars vegar og dreifbýli
hins vegar.
1. Þú vilt komast að því
hvort strákar og stelpur hegði sér ólíkt.
Beittu athugunaraðferðinni og skoðaðu hegðun
kynjanna í frímínútum á skólalóðinni.
Hvernig hegða strákarnir sér? Hvernig hegða
stelpurnar sér? Er eðlilegt eða æskilegt að
þú segir frá fyrirfram að þú
sért að rannsaka kynbundin hegðunarmun? Hverjir eru
kostir og gallar þess að láta vita/láta
ekki vita hvað maður er að kanna?
2. Þú ætlar að rannsaka
hvernig var að vera ungur á fyrri hluta tuttugustu aldar
og ákveður að beita viðtalsaðferðinni.
Búðu til fimm til tíu spurningar sem þú
leggur síðan fyrir afa þinn og ömmu. Dæmi:
Hvernig skemmtu unglingar sér?
3. Komu niðurstöður úr
könnuninni um verkefni og skyldur heima fyrir á óvart?
Hverjar gætu verið ástæður mismunandi
niðurstaðna?
|