47 Hvernig hjálpa Kría og Sóley Ramon að skilja þótt þau tali ekki sama tungumál? Hvers vegna heldur þú að teikningar virki svona vel? Kríu finnst hún vera búin að prófa allt og er alveg uppiskroppa með hugmyndir. Hún nær í blað og prófar að teikna og ótrúlegt en satt þá gengur Ramon vel að skilja teikningarnar. Samskiptin verða svolítið eins og Pictionary en það var lengi vel uppáhaldsspil Kríu og Sóleyjar. Kría er þakklát og horfir hlýlega á Sóleyju sem brosir á móti. Í samfélagsfræði eru þau að læra um samskipti Íslands við umheiminn allt frá miðöldum til dagsins í dag. Þau læra meðal annars um sögu Íslands og Danmerkur sem útskýrir af hverju danska er kennd í skólum á Íslandi og af hverju það hafa svona margir farið í nám til Danmerkur í gegnum árin. Kennarinn þeirra segir að það sé stór hópur íslenskra innflytjenda í Danmörku, sumir setjast þar að en aðrir snúa aftur. „Ég heyrði nýlega orðið ‚snúbúi‘ yfir fólkið sem flytur aftur heim,“ segir kennarinn. „Mér finnst það gott og lýsandi orð yfir íbúa sem snýr aftur.“ Sóley réttir upp hönd og kennarinn gefur henni orðið.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=