Viðsnúningur

46 9. kafli – desember Kríu finnst haustið hafa varað í heila eilífð þó hún hafi strax dottið inn í kunnuglega rútínu með skóla og sundæfingum, afmælum, matarboðum og einstaka bíóferðum. Hún er nánast alltaf umkringd fólki en samt hefur hún aldrei verið jafn einmana. Hún hittir Sóleyju daglega og þær tala saman en jafnvel þegar létt er yfir þeim er eins og brosið nái aldrei almennilega til augnanna. Amma sækir Lóu litlu systur í skólann einu sinni í viku og Kría reynir að vera með þeim þegar hún getur. Í eldhúsinu hjá ömmu hlusta þær á Ellý Vilhjálmsdóttur og hnoða í kleinur sem þær svo steikja í stórum potti – nýsteiktar kleinur eru allra meina bót. Jólin eru á næsta leiti þegar strákur að nafni Ramon, sem er nýfluttur til Íslands frá Venesúela, byrjar í bekknum. Kría veit hvað það er erfitt að vera útlendingur í nýju landi svo hún leggur sig fram við að taka vel á móti honum en þau geta lítið talað saman. Kría talar bæði íslensku og ensku en Ramon talar bara spænsku. Kría reynir að nota einföld orð á íslensku og mikið handapat. Sóley stendur álengdar og fylgist með en færir sig síðan nær og segir varfærnislega: „Hvað með að prófa að útskýra með því að teikna?“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=