48 „Þá er Kría snú-búi,“ segir hún og lítur yfir til Kríu með glampa í augunum. „Já,“ samþykkir Kría og brosir innilega, „ég bjó í Englandi.“ Kennarinn kinkar kolli ánægður með umræðurnar. Í morgunfrímínútunum tekur Kría eftir auglýsingu fyrir utan skólabókasafnið. Hverfisbókasafnið ætlar að byrja með nýtt teikninámskeið í janúar. Hún finnur Ramon einan inni í matsal að borða epli og bendir honum á að elta sig. Í sófa fyrir utan stærðfræðistofuna sitja Sóley og Hekla í hrókasamræðum. Þær þagna þegar Kría og Ramon birtast. „Ég ætlaði ekki að trufla,“ segir Kría, „en ég var að sjá að það verður teikninámskeið á bókasafninu í janúar. Eigum við að skrá okkur?“ Hekla hoppar á fætur. „Ég er til.“ Sóley hlær og hermir eftir Heklu. „Ég er til.“ Ramon horfir spyrjandi á þær og endurtekur: „Ég. Er. Til?“ Kría opnar skólatöskuna sína, finnur auða blaðsíðu í stílabók og byrjar að teikna mynd til að útskýra teikninámskeiðið fyrir Ramon. Hann virðist smátt og smátt átta sig á því um hvað málið snýst og vill vera með.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=