Viðsnúningur

Kría og Sóley eru bestu vinkonur, hálfgerðar samlokur. Hvað verður um vináttuna þegar þær búa ekki lengur í sama landinu? Þær hafa alltaf verið óaðskiljanlegar en einn daginn tilkynnir Kría Sóleyju að hún muni flytja til Englands í eitt ár með fjölskyldu sinni. Hvernig mun vináttu þeirra reiða af? Þegar Kría snýr aftur heim til Íslands er margt breytt. Hún þarf að finna sinn stað upp á nýtt – í skólanum, í tómstundum og jafnvel hjá Sóleyju. Ný andlit, nýir vinir og breyttar venjur gera heimkomuna flóknari en hún hafði ímyndað sér. Viðsnúningur er saga um vináttu, breytingar og það að snúa aftur heim. Höfundur sögunnar er Karítas Hrundar Pálsdóttir og myndhöfundur Arnar Þór Kristjánsson. 40373 Að heiman og heim VIÐSNÚNINGUR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=