Viðsnúningur

45 bestu vinkonu mína í heilt ár. Og hvað átti ég að gera, vera bara alltaf ein og bíða eftir þér? Nei. Þú eignaðist nýjar vinkonur, Emmu og Mayu og eitthvað. Og við Hekla urðum vinkonur. Þó að við Hekla séum vinkonur þýðir það ekkert að þú og ég séum ekki vinkonur!“ „En við vorum bestu vinkonur,“ segir Kría. „Við ERUM bestu vinkonur,“ segir Sóley. „Nei,“ segir Kría. „Þú meiddir mig! Við erum ekki vinkonur lengur, allavega ekki bestu vinkonur!“ Kría rýkur í burtu. Hvers vegna byrja Kría og Sóley að rífast? Hefðu þær getað talað saman á annan hátt til að koma í veg fyrir rifrildi? Hvað hefðir þú gert?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=