Viðsnúningur

43 Kría svarar ekki heldur starir bara á Sóleyju. Hún er öll uppspennt. „Get ég gert eitthvað fyrir þig?“ spyr Sóley og gerir aðra tilraun til að leggja hönd á öxlina á Kríu. „Hættu þessu,“ missir Kría út úr sér. Áður en hún veit af er hún búin að hækka róminn. „Gerðu það. HÆTTU bara.“ Sóley horfir forviða á hana. „Má ég ekki snerta þig?“ „Ég trúi ekki að þú hafir dúndrað boltanum í mig!“ „Fyrirgefðu. Ég sver að það var alveg óvart.“ „Þú veist að ég hata skotbolta!“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=