Viðsnúningur

41 „Ég ætla að vera með í skotbolta.“ „Ha?“ Kría er hissa. „En við þolum ekki skotbolta.“ „Kannski þú, ekki ég,“ segir Sóley. „Já, en við erum aldrei með.“ „Þú þarft þess ekki,“ segir Sóley ákveðin, „en ég ætla að vera með.“ Kría andvarpar. Hún vill ekki vera ein í sólbaði þannig að hún neyðist til að vera með í skotbolta. Hekla skýtur krakka hægri vinstri, Kríu þar meðtalda. Kría er auðvitað ennþá með í leiknum en það er bara svo drepleiðinlegt að vera dauð og standa bara eða sitja og bíða eftir að boltinn rúlli nógu nálægt til að hún nái honum og megi vera aftur með. Sóley er núna með boltann og einhvern veginn tekst henni að skjóta Heklu beint í rassinn.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=