Viðsnúningur

40 8. kafli – ágúst Skólinn byrjar aftur og stelpurnar fara í 8. bekk. Þeim finnst skrýtið að vera komnar í unglingadeildina af því að leiðin í skólann er alveg sú sama en þær eru núna í annarri byggingu og með aðra kennara. Í unglinga- deildinni mega þær vera með tyggjó og það eru sófar á göngunum og það besta er að það er frjáls tími í frímínútunum. Sumir nota allar hádegisfrímínúturnar til að borða. Aðrir hanga í sófunum á ganginum eða setjast við taflborðið og tefla. Sumir fara inn á bókasafn til að lesa eða vinna í heimanáminu. En í dag er einn af þessum sjaldgæfu sumardögum í september og Hekla töfrar bolta upp úr töskunni og vill fá alla með út í skotbolta. Það virðast allir vera á leiðinni út svo Sóley og Kría elta. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frímínútum? Kría stoppar upp við húsvegginn en Sóley heldur áfram út á grasflötina. „Sóley!“ kallar Kría. Sóley snýr sér við og þá er Kría búin að ná henni. „Hvert ertu að fara?“ spyr Kría. „Það er fínt að vera í sólbaði þarna upp við vegginn.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=