36 Kría er alltaf að segja hluti eins og: „Vá, hvað vatnið er gott. Íslenskt vatn er bara best“ … „Úff, hvað það er mikill vindur. Það er ekki svona mikill vindur í Englandi.“ Stundum finnst Sóleyju eins og Kría geti ekki talað um annað en muninn á Íslandi og Englandi. Stundum er eins og hún bara verði að monta sig en það er allt í lagi. Sóleyju finnst alveg gaman að heyra um muninn á London og Colchester og hvað indverskur matur er æðislegur og hvað það er breskt að fara í göngutúr úti í náttúrunni í gúmmístígvélum með hund í bandi og að drekka te frekar en kaffi. Af hverju heldur þú að Sóley finni stundum fyrir pirringi þegar Kría talar endalaust um muninn á Íslandi og Englandi? Sóleyju finnst aftur orðið frekar hversdagslegt að hitta Kríu og kann að meta hvað það er þægilegt að geta bara rölt yfir og bankað upp á hjá henni. „Hæ,“ segir hún um leið og dyrnar opnast. „Viltu koma í sund?“ „Æ, nei,“ segir Kría. „Ég nenni ekki.“ „Nú?“ „Gerum eitthvað annað.“ „En ef við plötum Birki bróður með okkur? Þá getum við keyrt í einhverja aðra sundlaug.“
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=