35 Saman á ný 7. kafli – júlí Sóley röltir niður götuna að húsi Kríu og fjölskyldu. Hún er spennt að hitta hana aftur eftir allan þennan tíma en líka smá kvíðin. Kannski er Kría komin með bleikt hár og búin að stækka um tíu sentímetra þannig að hún hreinlega þekkir hana ekki í útliti ... nei, þarna situr hún úti í garði og vinkar til Sóleyjar. Einu sinni hefðu þær hlaupið beint í fangið á hvor annarri, núna ganga þær bara rösklega en svo faðmast þær. Faðmlagið er kunnuglegt, þétt og innilegt og áhyggjur Sóleyjar gufa upp. Þetta er sama Kría og hún hefur saknað svo mikið. Það eru nokkrar vikur þangað til skólinn byrjar aftur svo þær hittast daglega og reyna að nýta tímann vel til að gera allt sem þær gátu ekki gert saman á meðan þær bjuggu í sitthvoru landinu. Gistipartý er efst á óskalistanum. Þær horfa á skemmtilega bíómynd heima hjá Sóleyju, borða popp og nammi og sofa svo hlið við hlið á vindsæng í stofunni. Síðan fær Sóley að fara með Kríu og fjölskyldu upp í bústað þar sem þau grilla hamborgara og fara í heita pottinn. Kría saknaði íslensku sundlauganna á meðan hún var í burtu þannig að þær fara oft í sund. Kría segir líka að íslenskur ís sé bestur í heimi þannig að þær fara nokkuð oft út í ísbúð. Og ekki kvartar Sóley því það er ekkert sumarlegra en ís og sund.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=