Viðsnúningur

32 „Sorrý, Stína,“ kallar Sóley og Hekla geiflar sig. „Hver ætli þessi Stína sé eiginlega?“ spyr hún og aftur hlær Sóley. Næsti tími er enska og þau eiga að lesa stuttan texta og svara spurningum. Textinn er um bangsann Paddington sem flytur frá Perú til Englands og eignast þar nýja fjölskyldu. Uppáhaldsmatur Paddingtons er brauð með marmelaði en það var líka uppáhaldsmatur Elísabetar drottningar. „Hefur Kría hitt drottninguna?“ spyr einhver yfir allan bekkinn. „Nei, auðvitað ekki,“ svarar annar, „hún er dauð.“ „Dáin,“ segir kennarinn, „maður segir dáin eða látin.“ Hún brosir til Sóleyjar. „Hvað er annars að frétta af henni Kríu okkar?“ Sóley roðnar. Hún efast um að Kría hafi hitt Karl Bretakonung en kannski hefur hún séð konungshöllina. En hvað er annars að frétta af Kríu? Hún er vitlaus í Hobnobs og sver að það er ekki eins og annað súkkulaðikex. Vinkonur hennar heita Maya, Divine og Emma. Í desember sá hún nýfædda seli á ströndinni, í janúar sá hún söngleikinn Mamma Mia og í febrúar voru páskaliljur í blóma úti um allt. Ekkert merkilegt gerðist í mars og þær hafa lítið heyrst núna í apríl en Kría sendi henni skilaboð til að monta sig af því að vera komin með miða á London Comic Con í maí.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=