Viðsnúningur

31 6. kafli – apríl Sóley hleypur upp að húsveggnum og hendir peysunni sinni frá sér. Það er allt of heitt að vera í henni því þó það sé í rauninni kalt úti vermir sólin. Sóleyju hitnar líka við það að hlaupa um. Þetta eru þriðju hádegis- frímínúturnar í þessari viku sem veðrið er búið að vera kjörið fyrir skotbolta og Sóley hefur verið með í öll skiptin. Sóley sér ekki Heklu fyrir aftan sig og fær boltann í sig. Hún frýs og horfir illilega á Heklu en Hekla yppir bara öxlum og kallar „sorrý, Stína“. Tónninn er svo kæru- leysislegur og fyndinn að Sóley getur ekki annað en hlegið. Hún fylgist með boltanum í von um að hann rúlli til hennar og hún geti aftur verið með. Heppnin er með henni þegar boltinn skýst í vegginn og þaðan til hennar. Sóley miðar á Heklu og þó Hekla sé fljót að hlaupa skýst boltinn í bakið á henni og Hekla frýs.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=