Viðsnúningur

33 „Bara allt gott,“ svarar Sóley. „Kría er orðin svo bresk að hún drekkur te með litla fingurinn út í loftið.“ Bekkurinn hlær. „Hún er orðin svo bresk að hún á þrjár regnhlífar.“ Bekkurinn hlær aftur. „Hún er orðin svo bresk að stundum held ég að hún komi ekki aftur til Íslands,“ bætir Sóley við lægra en áður. Nokkrir flissa en kennarinn brosir uppörvandi til Sóleyjar. „Kría verður komin aftur áður en þú veist af, vittu til.“ Af hverju heldur þú að Sóley segi að Kría sé orðin „svo bresk“? Er hún að grínast eða er eitthvað annað sem býr að baki?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=