Viðsnúningur

28 „Have you been to Iceland? I mean the country, not the supermarket.“ Vatn er stór hluti af lífi Kríu af því að hún æfir sund. Þess vegna ætlar hún að segja þeim frá íslensku fossunum sem fara aftur á bak, þú veist, þegar það er svo mikill vindur að fossinn fýkur upp í loftið í staðinn fyrir að renna niður fjallshlíðina. Og hún ætlar líka að monta sig af því hvað drykkjarvatnið er gott á bragðið á Íslandi og hvað sundlaugarnar eru margar og flottar, með heitum pottum og rennibrautum. Kría saknar íslensku sundlauganna. Hún er búin að finna íþróttafélag hérna í Colchester þar sem hún getur æft sund og það er frábært. En þó að æfingarnar séu svipaðar og heima þá er stemningin allt öðruvísi. Hún saknar þess að geta farið í útilaugina og rennibrautina og heita pottinn. Það er ekkert svoleiðis hér. Sóley segir að æfingarnar heima séu svolítið öðruvísi í ár. Það eru fleiri æfingar og fleiri mót. Sóley fór til dæmis um daginn að keppa á Akranesi og sendi Kríu mynd af ísnum sem mamma hennar keypti handa henni í verðlaun á eftir. Sóley og Kría skiptast enn á myndum og stuttum skilaboðum en bréfum hefur fækkað. Venjulega tekur það svona viku frá því maður setur bréf í póst og þangað til það berst. En síðasta póstkortið frá Sóleyju var þrjár vikur á leiðinni. Hún skrifaði um ferð sem hún fór á Þingvelli til að sjá haustlitina en þegar Kría las bréfið voru fyrstu jólavörurnar komnar í búðir. Kría reynir að senda

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=