Viðsnúningur

27 5. kafli – desember Kría situr við borðstofuborðið heima hjá sér og undirbýr kynningu sem hún á að vera með í vikunni. Það er alltaf nóg að gera í skólanum. Það er líka mjög mikið heimanám sem tekur hana langan tíma að leysa af því enska er ekki móðurmálið hennar. Hún er örugglega helmingi lengur að lesa og skrifa og klára verkefnin en bekkjarfélagar hennar. Þema kynningarinnar er „Lönd heimsins“ og Kría ætlar að segja bekkjarfélögum sínum frá Íslandi. Á borðinu eru póstkort með myndum af íslenskum fossum, eldgosum og hestum sem Kría ætlar að láta ganga um stofuna á meðan hún talar. Þau mega koma með eitthvað matarkyns fyrir kynninguna þannig að hún ætlar að bjóða þeim að smakka súkkulaði- og lakkrísnammi sem er svo íslenskt. Hvers myndir þú sakna frá Íslandi? Kríu finnst oft frekar leiðinlegt að hlusta á kynningar, svo hún vill að kynningin sín verði fyndin og skemmtileg. Hún prófar brandarana sína á Lóu en það er lítið að marka hana af því hún hlær að öllu sem Kría segir. En sjálfri finnst henni skondið að byrja á því að segja:

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=