29 Sóleyju skilaboð á hverjum degi en gleymir því stundum af því Sóley er svo lengi að svara. Þessar kökur eru út um allt en mér finnst þær ekki góðar. Ertu búin að kaupa jólagjafir handa fjölskyldunni þinni? Er fjólublár ennþá uppáhaldsliturinn þinn? Hæhæ. Fórum á jólamarkaðinn í Heiðmörk í dag. Svo fallegt í snjónum. Það er enginn snjór hérna en það er mjög kalt, sérstaklega inni í húsunum af því þau eru eldgömul og það er dýrt að hita þau. Stundum set ég á mig vettlinga heima. Sóley er svo upptekin að mæta í jólaföndur og á jóla- tónleika og jólaböll að það er langt síðan þær hafa náð að tala saman í síma.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=