Viðsnúningur

23 skólabúningi! Stelpurnar eru flestar í pilsum og háum sokkum. En mér finnst of kalt að hafa bert á milli svo ég fæ að vera í sokkabuxum. Svo erum við öll í hvítum skyrtum, með röndótt bindi og í gráum peysum eða dökkbláum jökkum sem eru merktir skólanum okkar. Svona eins og Gryffindor-merkið í Harry Potter en samt öðruvísi. Um helgina er ég að fara til London með Mayu, stelpunni frá Indlandi, og fjölskyldunni hennar. Við ætlum að heimsækja The Cartoon Museum sem er safn með teiknimyndateikningum og svo ætlum við að borða á indverskum veitingastað sem vinir þeirra reka. Ég bið að heilsa öllum. Knús og kossar, Kría Af hverju heldur þú að Kría taki fram að hún sé ekki eini útlendingurinn?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=