Viðsnúningur

18 Kría flýtir sér eins hratt og hún getur niður brattan stigann og finnur mömmu sína í borðstofunni. Hún biður mömmu um að hnýta vinabandið um úlnliðinn á sér. Síðan fær hún leyfi mömmu til að fara í símann þó að það sé hádegi og hún fái venjulega ekki skjátíma nema á kvöldin. Síðustu skilaboðin í spjallinu þeirra Sóleyjar tengjast réttinum fish and chips, sem er djúpsteiktur fiskur og franskar, sem Kría borðaði í gærkvöldi. Sóley spurði út í grænu baunirnar á myndinni og Kría sagði henni að þær hefðu verið furðu góðar af því þær voru bornar fram með myntusósu. Kría leggur símann frá sér og ákveður að fara upp í herbergi og finna bréfsefnið sem amma gaf henni. Það er kominn tími til þess að skrifa fyrsta bréfið til Sóleyjar. Mynta minnir mig á ís og tannkrem, ekki baunir! Svooo flott, takk!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=