Viðsnúningur

17 og fjórar skeiðar, sem þýðir að þau þurfa alltaf að vera að vaska upp. Kría andvarpar við tilhugsunina. Það tekur svo ósköp langan tíma að koma sér almennilega fyrir. Þegar Kría tekur bréfið úr umslaginu dettur eitthvað í fangið á henni. Þetta er hnýtt vinaband með hjörtum. Þegar þær fóru saman í Vindáshlíð síðasta sumar lærðu þær að gera vinabönd með því að hnýta hnúta sem voru í laginu eins og stafurinn V en Sóley hefur greinilega haldið áfram að æfa sig og læra meira. Kría brosir en er líka næstum farin að gráta af því hún saknar Íslands alveg ótrúlega mikið og svo langar hana líka bara í almennilegan mat: skyr, plokkfisk og kleinurnar hennar ömmu. Hún tekur bréfið í sundur: Elsku besta vinkona mín. Góða skemmtun í London. Þetta verður mikið ævintýri og ég vona að þú upplifir fullt. Ég sakna þín strax og þú ert ekki einu sinni farin. (En þú verður farin þegar þú lest þetta.) Æi, ég sakna þín. Lovjú! Þín samloka, Sóley PS. Ég bjó til alveg eins vinaband handa mér

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=