16 Upprunalega var ekkert klósett í húsunum en þeim var svo bætt við aftan á húsin síðar meir. Annað skrýtið er að það eru fjórir arnar í húsinu, einn í hvoru svefnherbergi og einn í hvorri stofu. Lóa litla systir vonar að enski jólasveinninn komi niður um skorsteininn. Hún heldur að hún fái jafnvel fjórar gjafir af því að jólasveinninn getur komið niður um fjóra skorsteina. Hún er búin að gleyma að hún fékk ekkert stærri gjöf í skóinn síðustu jól þó að hún skipti spariskónum sínum út fyrir stígvél. Kría heldur á umslagi sem á stendur nafnið hennar með fjólubláu glimmeri. Sóley lét hana hafa það þegar þær kvöddust og sagði henni að opna það þegar hún væri „alveg flutt“. Þau eru búin að vera í Englandi í tvær vikur núna en Kría er ekki ennþá búin að læra í hvaða ruslafötu hún eigi að henda ruslinu. Hér fer það víst eftir því hvort megi brenna það eða ekki, sem er eitthvað svo ruglingslegt og skrýtið. Íbúðin er með öllum húsgögnum en eldhússkáparnir eru tómir og þau eru bara búin að kaupa það allra nauðsynlegasta: fjögur glös, fjóra diska
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=