15 Í sundur 3. kafli – ágúst Kría situr á teppalögðu gólfi í nýja herberginu sem hún mun deila með Lóu litlu systur sinni næsta árið. Íbúðin þeirra er í gömlu raðhúsi í bænum Colchester sem er alls ekki eins nálægt London og Kría hélt, sem er svekkjandi. Það tekur meira en klukkutíma með lest að fara inn í borgina. Kría er ekki ennþá búin að sjá Big Ben og konungshöllina en hérna í Colchester er kastali og svona rauðir símaklefar. Hvað gæti fólki fundist framandi eða óvenjulegt þegar það kemur til Íslands í fyrsta sinn? Íbúðin þeirra er á tveimur hæðum. Kría er búin að átta sig á að það er ekkert grín að þurfa að pissa á næturnar. Fyrst þarf hún að príla niður brattan stigann. Það brakar í hverju þrepi. Næst þarf hún að fara í gegnum dimma borðstofuna og að lokum í gegnum ískalt eldhúsið sem er í ofanálag flísalagt. Og auðvitað glaðvaknar hún við þetta og á erfitt með að sofna aftur, sem er alveg ógeðslega pirrandi. Pabbi segir að þetta sé yfirleitt svona í húsum frá Viktoríu-tímabilinu af því að þau eru minnst 120 ára gömul.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=